Fyrirspyrjandi (Ögmundur Jónasson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. dómsmrh. fyrir svarið. Ég verð að viðurkenna að ég á ofurlítið erfitt með að átta mig á því. Í máli hæstv. ráðherra kemur fram að bannað sé að framselja einkaleyfið. Síðan kemur skilgreining á einkaleyfinu. Það byggir á því að ágóðinn af happdrættinu eða happdrættisvélunum ef því er að skipta renni til einkaleyfishafans. Síðan segir hæstv. ráðherra að einkaleyfishafinn geti gert samning, ekki um framsal, ég veit ekki hvaða orð við eigum að nota um það, þar sem sá sem rekur kassann hagnist á þeim um vissa hlutfallstölu, fái ákveðna prósentu af hagnaðinum. Ef þetta er ekki framsal á einkaleyfisrétti, þá vildi ég gjarnan fá nánari skýringu á því hvað felst í því einkaleyfi. Ég leyfi mér að óska eftir því við hæstv. dómsmrh. að þessi mál verði könnuð nánar.
Mig langar að inna hæstv. ráðherra eftir öðru og það snýr að reglugerðarsmíð í sambandi við þessa kassa. Það kveður beinlínis á um það í lögum að setja beri reglugerð um rekstur slíkra kassa. Eftir því sem ég fæ best séð og eftir leit í opinberum gögnum hefur sú reglugerð enn ekki verið sett, enda kom það fram í álitsgerð nefndar sem sérstaklega fjallaði um þessi mál.
Ég óska sem sagt eftir því, herra forseti, að hæstv. dómsmrh. upplýsi okkur nánar um hvað felst í þessu einkaleyfi. Í öðru lagi hvort hæstv. ráðherra er tilbúin að verða við þeirri ósk minni að þau mál verði athuguð nánar og þinginu verði síðan gerð grein fyrir niðurstöðu af þeirri rannsókn og að lokum spurningin um greinargerðina.