Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá meiri hluta efh.- og viðskn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 50/1997, um stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands. Þetta mál hefur verið til umfjöllunar í nefndinni. Málið bar nokkuð brátt að en nefndin hefur á skömmum tíma lagt töluvert mikla vinnu í það. Hún hefur fengið til sín allmarga sem taldir eru upp í nál. og viðað að sér ýmsum skriflegum athugasemdum um málið. Ég vil sérstaklega þakka nefndarmönnum fyrir gott samstarf við að afgreiða frv. á svo stuttum tíma sem raun ber vitni.
Meiri hluti nefndarinnar gerir tillögu um að frv. verði samþykkt óbreytt enda frv. sjálft ekki mikið að vöxtum, einungis tvær greinar. Þar af er önnur greinin að sjálfsögðu gildistökugrein. Málið er nokkuð einfalt. Það snýst um að selja 15% af hlutafé ríkissjóðs í hvorum bankanum um sig, Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf.
Það stóð alltaf til að aðrir aðilar en ríkið eignuðust drjúgan hlut í bönkunum. Við hlutafélagavæðingu bankanna var gert ráð fyrir því að bönkunum yrði heimilt að bjóða út hlutafé með samþykki viðskrh. þannig að aðrir en ríkið ættu allt að 35% í heildarhlutafé hvors bankans um sig.
Báðir bankarnir buðu út hlutafé sem samsvaraði 15% eignarhlut annarra aðila en ríkisins. Það tókst mjög vel þannig að í báðum bönkunum eru nú þúsundir hluthafa og eignarhald þeirra á þessum 15% hlutum er mjög dreift.
Nú standa menn helst frammi fyrir því að ákveða hvort fara eigi þá leið að uppfylla kröfur Verðbréfaþingsins með því að bjóða meira út, þ.e. hvort bæta eigi við hlutafé í bönkunum þannig að hægt sé að uppfylla kröfur Verðbréfaþingsins eða hvort gera eigi þá stefnubreytingu að selja af hlut ríkissjóðs sem reyndar var ekki reiknað með að gert yrði þegar frv. voru samþykkt.
Meiri hluti nefndarinnar telur að sú ákvörðun sé skynsamleg, að selja frekar af hlut ríkissjóðs heldur en bjóða út nýtt hlutafé. Ástæðan er sú að bankarnir standa báðir mjög vel efnahagslega og með því að uppfylla þessar kröfur Verðbréfaþingsins með því að bjóða út nýtt hlutafé mundu þeir væntanlega báðir leitast við að stækka efnahagsreikninga sína og auka útlán sín. Það væri kannski ekki það heppilegasta fyrir atvinnulíf landsins í dag þar sem menn tala flestir hverjir um að ástæða sé til að draga úr þenslu frekar en hitt. Í því árferði sem við búum nú við, þeirri miklu eftirspurn sem er í hagkerfinu er því tvímælalaust betra að selja frekar af hlut ríkissjóðs til að ná því markmiði að bankarnir uppfylli kröfur Verðbréfaþings sem skráningu þar.
Síðan urðu töluverðar umræður í nefndinni um hvort sú aðgerð að selja af hlutafé ríkissjóðs væri til þess fallin að draga úr þenslu eða ekki. Allir eru sammála um að það sé líklegra til að hamla gegn þenslu að selja frekar úr hlut ríkissjóðs en bæta við hlutafé. Um það var ekki deilt. Töluverða akademísk umræða fór fram um hvort sala hlutafjár ríkissjóðs drægi úr þenslu eða ekki. Tilfellið er að það er hægt að búa til ýmsar áætlanir um viðbrögð fólks, einstaklinga, stofnana og fyrirtækja. Mismunandi viðbrögð bæði kaupenda og seljenda hafa mismunandi áhrif á eftirspurn í þjóðfélaginu. Þannig má segja að ef hluturinn væri fyrst og fremst seldur til stofnanafjárfesta, ef fyrst og fremst yrðu höfð skipti á eignum og ríkissjóður gerði sjálfur lítið til að hafa áhrif á eftirspurn með þeim peningum sem hann fær í sínar hendur, þá mundu áhrifin á þenslu til eða frá vera hverfandi. Ef ríkissjóður notar ekki fjármunina sem hann fær til að hafa áhrif á eftirspurn í þjóðfélaginu og eins ef almenningur eignast stærri hlut í bankanum þá er líklegra að áhrifin til að draga úr eftirspurn verði meiri. Ég tel meiri líkur á því að sparnaður aukist eftir því sem þátttaka almennings í fyrirhugaðri sölu verður meiri.
Ég tel að þetta mál sé afar gott á allan hátt. Að sjálfsögðu tel ég nauðsynlegt fyrir þessi fyrirtæki, Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf., að uppfylla kröfur Verðbréfaþings um skráningu á þinginu. Því er nauðsynlegt að ríkið fari niður fyrir 75% eignarhlut í bankanum eins og alla tíð stóð til. Við núverandi aðstæður er betra að ná því markmiði með því að selja af hlut ríkissjóðs fremur en að bjóða út nýtt hlutafé. Þetta eru meginröksemdirnar fyrir því að meiri hluti nefndarinnar telur sjálfsagt að afgreiða þetta frv. óbreytt.