Stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands

Föstudaginn 10. desember 1999, kl. 11:50:02 (2682)

1999-12-10 11:50:02# 125. lþ. 42.1 fundur 235. mál: #A stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands# (sala á 15% hlut) frv. 93/1999, VE (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur, 125. lþ.

[11:50]

Vilhjálmur Egilsson:

Hæstv. forseti. Ég tel skynsamlegt að selja af hlut ríkissjóðs í þessum bönkum, skynsamlegra en að auka hlutafé til þess að uppfylla skilyrði Verðbréfaþings. Ég tel að þetta sé rétt tímasetning á sölunni.

Hæstv. forseti. Mér þykir það ánægjulegt að geta fengið að segja já við þessu frv., og ég vona að fljótt aftur komi nýtt þingmál hér inn í salinn þar sem ég get fengið að segja aftur já við því að selja enn þá meira. Ég segi já.