Frsm. minni hluta fjárln. (Einar Már Sigurðarson) (andsvar):
Herra forseti. Ég tek undir með hv. þm. og deili með honum áhyggjunum af því að það sé spurning hvort heilbrrn. sé í raun í stakk búið til þess að taka við því hlutverki sem því er ætlað í tillögum meiri hlutans og tek undir það með hv. þm. að ég held að sé eðlilegt að við ræðum það frekar í fjárln., bæði hvernig reynt verður að koma þá til móts við ráðuneytið til þess að standast þetta álag sem þarna augljóslega verður og eins varðandi hlutverk fjárln. í því að koma þessu máli á réttan kjöl.
Það er aðeins eitt til viðbótar varðandi þennan málaflokk sem mig langar til að spyrja hv. þm. Það er hvort hann deili með mér þeim áhyggjum sem fram koma í ræðu minni um að það virtist vera þegar bornar eru saman tölur, þ.e. þær tölur sem nú liggja fyrir um áætlaða niðurstöðu ársins 1999 og síðan þær tillögur sem liggja fyrir, bæði í frv. til fjárlaga árið 2000 og síðan brtt. meiri hlutans, að heilbrigðisstofnanir fái eingöngu hækkun upp á 2,6%.
Ég taldi mig hafa fært nokkur rök fyrir því í ræðu minni að þetta mundi ekki duga og þess vegna væri ákveðin hætta á því að við værum ekki að leysa vandann sem skyldi og þyrftum hugsanlega á milli 2. og 3. umr. að taka málið upp. Ég benti í þessu sambandi m.a. á það að þetta er u.þ.b. einu prósenti undir þeim verðlagsviðmiðunum sem eru almennt viðhafðar í frv. og einnig að það á eftir að semja við um 30% af starfsfólki heilbrigðisstofnana og eins það að við vitum að hluti af framgangskerfi hjúkrunarfræðinga er óframkominn. Þess vegna spurði ég í ræðu minni hvað vanti marga milljarða. Ég spyr hv. þm. hvort hann deili þessum áhyggjum með mér.