Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Mér finnst nú stjórnarliðar vera óþarflega hvumpnir. Ég held að þeir hafi ekki heyrt það sem ég sagði. Í framhaldi af þessum orðaskiptum sem höfðu orðið milli hv. þm. Einars Odds Kristjánssonar og næsta ræðumanns á undan mér eða þess sem í andsvari var við hann, þá vitnaði ég til þess að það væri svona gamalkunngur hlutur að laga til tekjuspárnar í lokin til að fá hlutina til að passa og það hefði í gamla daga verið kallað að ljúga saman fjárlögin, sagði ég. Það var allt og sumt. Ég var ekkert sérstaklega að bera það upp á menn við þessa fjárlagagerð heldur lífgaði við gamalt orðtak sem stundum var látið flakka á síðkvöldum þegar menn voru að ræða fjárlögin fyrr á öldinni. En ég ætla ekki að eyða meiri tíma í það. Allir vita til hvaða hluta er verið að vísa.
Hv. þm. Árni Johnsen telur að það fari mér ekki vel að vera í hlutverki lambsins og ég hafi hvorki ytra né innra atgervi til þess. Samt er það nú svo að ég held að ég kjósi frekar að reyna að leika lambið en úlfinn ef hv. þm. Árni Johnsen vildi þá taka það að sér.