Fjárlög 2000

Mánudaginn 13. desember 1999, kl. 12:23:12 (2832)

1999-12-13 12:23:12# 125. lþ. 43.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2000# frv. 124/1999, JB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 125. lþ.

[12:23]

Jón Bjarnason:

Herra forseti. Þó að hér sé verið að leggja til nokkra hækkun á Endurbótasjóði menningarstofnana stendur áfram óbreytt sú mikla skerðing sem sjóðurinn verður að taka á sig. Þessa sjóður hefur líka ábyrgð gagnvart mörgum mjög merkilegum verkefnum. Við erum andvíg skerðingunni í heild, fögnum að vísu þessari viðbót en sitjum að öðru leyti hjá.