Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég vil í þessu sambandi vekja athygli á hversu vel tókst til með sölu á bréfum í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins. Það var gríðarlega stór sala. En vegna þess hvernig háttaði til með þá sölu var kostnaðurinn við hana afar lítill.