Fjáraukalög 1999

Miðvikudaginn 15. desember 1999, kl. 10:44:25 (2917)

1999-12-15 10:44:25# 125. lþ. 46.1 fundur 117. mál: #A fjáraukalög 1999# frv. 129/1999, EMS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 125. lþ.

[10:44]

Einar Már Sigurðarson:

Herra forseti. Í upphafi atkvæðagreiðslunnar vil ég fyrir hönd þingflokks Samfylkingarinnar taka fram nokkur atriði.

Þau fjáraukalög sem koma hér til atkvæða staðfesta það sem við höfum haldið fram í minni hluta fjárln. að ríkisstjórnin hefur ekki haft tök á ríkisfjármálunum. Útgjöld hafa aukist um rúmlega 10 milljarða. Að auki er ýmislegt í tillögunum sem að áliti okkar stenst ekki lög um fjárreiður ríkisins. Við stöndum hins vegar frammi fyrir gerðum hlut. Stjórnarandstaðan hefur ekki getað haft áhrif á það sem gerst hefur. Fjáraukalögin eru því á ábyrgð stjórnarmeirihlutans og þess vegna mun þingflokkur Samfylkingarinnar sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.