Fjáraukalög 1999

Miðvikudaginn 15. desember 1999, kl. 10:52:29 (2920)

1999-12-15 10:52:29# 125. lþ. 46.1 fundur 117. mál: #A fjáraukalög 1999# frv. 129/1999, SvanJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 125. lþ.

[10:52]

Svanfríður Jónasdóttir:

Herra forseti. Með þessum tillöguflutningi horfist ríkisstjórnin í augu við og staðfestir þann herkostnað sem er vegna þjóðflutninganna miklu en brottflutningur af landsbyggðinni hefur aldrei verið meiri en þessi árin. Það er staðfest hér af hálfu hæstv. ríkisstjórnar með stórum fúlgum í fólksfækkunarframlög til sveitarfélaganna vegna áranna 1997, 1998 og 1999. Það eins og hin mikla byggðaröskun er á pólitískri ábyrgð ríkisstjórnarinnar og því sitjum við hjá við þessa afgreiðslu.