Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Mér finnst hæstv. menntmrh. vera óþarflega snakillur út af þeirri umræðu sem hér fór fram og hæstv. ráðherra tönnlaðist á því að verið væri að gera lítið úr því sem þó væri verið að gera á ýmsum stöðum varðandi endurreisn og viðhald menningarverðmæta. Hér var fyrst og fremst talað fyrir og rökstutt það sjónarmið að þörf væri fyrir alla þessa peninga til mikilvægra og brýnna verkefna á þessu sviði. Ef menn hefðu áhyggjur af þenslu á suðvesturhorninu væru mörg æpandi verkefni sem ekki væri unnt að ráðast í út um land sem væri nóg pláss fyrir þetta fé og reyndar miklu meira en það í brýn þjóðþrifaverkefni sem ekki eru þensluhvetjandi.
Síðan er það, herra forseti, ákaflega athyglisvert og sérstaklega hlýtur það að vera fyrir þingmenn Sjálfstfl. að þetta sérstaka álag á eignarskatt, sem þeir hafa að vísu ekki verið sérstakir stuðningsmenn í gegnum tíðina en hefur þó verið varið með vísan til þess að um sérstakan tekjustofn til menningarvarðveislu væri að ræða, er orðið að tekjustofni fyrir ríkissjóð. Nú á veruleg fjárhæð af þessum sérmerkta tekjustofni að renna beint í ríkissjóð. Fróðlegt væri að rifja upp ræður þingmanna og núv. ráðherra Sjálfstfl. frá fyrri tíð þegar þeir hömuðust gegn þessu og öðrum sambærilegum sköttum.