Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. Það er verið að leggja til að afnema mannréttindabrot. Þetta eru gamlar leifar frá fátækraaðstoðinni frá 19. öldinni og 21. öldin er að ganga í garð. Tekjutenging við tekjur maka hjá þeim sem eru óvinnufærir eða orðnir aldraðir og eru á lífeyrisgreiðslum viðgengst hvergi í heiminum. Við erum að verða að athlægi meðal þjóða að viðhalda þessari ómannúðlegu skerðingarreglu og ég hefði ekki trúað því, herra forseti, að menn ætluðu ekki að taka á þessu máli áður en ný öld gengur í garð. Ég segi svo sannarlega já við þessu máli, herra forseti.