Fjárlög 2000

Fimmtudaginn 16. desember 1999, kl. 12:25:41 (3106)

1999-12-16 12:25:41# 125. lþ. 47.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2000# frv. 124/1999, GÁS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 125. lþ.

[12:25]

Guðmundur Árni Stefánsson:

Herra forseti. Hér á ferðinni ákaflega undarleg heimild og í raun og sanni hafa engar raunhæfar skýringar komið fram af hverju hennar er leitað því að samstarfsmöguleikar sjúkrahúsa eru heimilir í lögum. Hins vegar liggur fyrir samkvæmt munnlegum yfirlýsingum að hér sé um að ræða heimild Alþingis til handa sjúkrahúsum að leita möguleika á því að fara í hlutafélagavæðingu með hinum og þessum úti í bæ. Ég hef af því áhyggjur af því að skýringar liggja ekki fyrir og mun því ekki bera ábyrgð á þessari heimild og greiði ekki atkvæði.