Skattfrelsi norrænna verðlauna

Fimmtudaginn 16. desember 1999, kl. 15:20:33 (3140)

1999-12-16 15:20:33# 125. lþ. 47.10 fundur 4. mál: #A skattfrelsi norrænna verðlauna# frv. 126/1999, MF (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 125. lþ.

[15:20]

Margrét Frímannsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta var einkar fróðleg, stutt ræða hjá hv. þm. Pétri H. Blöndal. Hann styður þetta mál vegna þess að verið er að breyta úr reglugerð yfir í lög. Engu að síður er hann á móti öllum skattundanþágum. Frv. felur þó ekki í sér annað en skattundanþágur. Það er afar erfitt að samræma rökin sem hann hefur fyrir stuðningi við frv.