Guðrún Ögmundsdóttir:
Virðulegur forseti. Ég mun ekki rekja einstaka þætti í frv. Það höfum við náttúrlega gert í nefndinni og ég gerði það líka við 1. umr. Ég mun hins vegar taka einn þátt frv. sérstaklega og ræða hann hér.
Strax og málið kom fram var bent á að réttur þeirra sem eru í staðfestri samvist sé fyrir borð borinn í lögunum og óvígðri sambúð sem ekki er löggerningur, eins og gifting eða staðfest samvist, væri gert hærra undir höfði. Jafnvel einstaklingar eiga meiri möguleika á frumættleiðingum en þeir sem eru í staðfestri samvist. Rætt var um mikilvægi þess að börn sem búa í stjúpfjölskyldum þar sem foreldrar eru í staðfestri samvist skyldu hafa sömu möguleika og önnur börn í öðrum stjúpfjölskyldum. Þann möguleika getur Alþingi ekki tekið frá þeim heldur á Alþingi með lagasetningu að styrkja þann rétt þeirra.
Kannski má segja að í upphafi hefði verið best að hafa þetta þriggja liða bandorm, þ.e. ættleiðingarfrv., við Haag-samning og opnun á lögunum um staðfesta samvist. En þannig varð það ekki og því tveir möguleikar í stöðunni. Annars vegar kom til greina að flytja brtt. við þessa umræðu um frv. þar sem við mundum setja inn ákvæði, að þrátt fyrir ákvæði 6. gr. laga um staðfesta samvist þá muni ... o.s.frv. Það þykir ekki góð lögfræði og einnig vegna þess að með orðunum ,,hjón`` í þessum lögum er auðvitað einnig átt við um þá sem eru í staðfestri samvist. Það eru fyrst og fremst þau lög sem fela í sér það mannréttindabrot sem hér hefur stundum verið rætt um.
Ég leit svo á að ef nefndarmaður kæmi með einhverja brtt. þá mundi allshn. flytja hana. Um það náðist ekki þverpólitísk samstaða út frá því sem ég nefndi hér á undan. Mér finnst málið í raun of gott til þess að leggja fram tillögur um breytingar á því til að láta fella í jafnbrýnu máli.
Annar möguleikinn er að þegar lögin um staðfesta samvist verða opnuð vegna ýmissa annarra atriða sem taka þarf á þá gefur það allshn. möguleika á að breyta þessum þætti. Það yrði þá gert á vorþingi eins og kemur fram í nál. Allshn. gæti þá flutt brtt.
Fyrir hönd þessa hóps og þessara barna met ég það mikils að um málið sé breið pólitísk samstaða. Ég veit að hún er til staðar í þinginu. Fólk í staðfestri samfest er ekki einsleitur hópur þannig að þetta er líka spurning um hagsmuni þessara barna, að þau eigi sömu möguleika og önnur börn í stjúpfjölskyldum. Sérfræðingur í dómsmrn. staðfesti þetta með að hjón í ættleiðingarlögunum mundi ná yfir þá sem væru í staðfestri samvist þannig að enginn þyrfti að velkjast í vafa um það.
Umræður í allshn. hafa verið mjög gagnlegar, góðar og málefnalegar. Ég vil þakka formanni nefndarinnar fyrir það. Margir hafa komið til nefndarinnar og þar hafa farið fram faglegar og góðar umræður. Ég vil ítreka það að ég tel málið þess eðlis að um það þurfi að vera breið pólitísk samstaða. Mér finnst málið of mikils virði til að tefja það með skammtímapólitík og ég undirritaði þess vegna nál. án fyrirvara og mun að sjálfsögðu samþykkja frv.