Ættleiðingar

Fimmtudaginn 16. desember 1999, kl. 18:51:04 (3190)

1999-12-16 18:51:04# 125. lþ. 47.14 fundur 68. mál: #A ættleiðingar# (heildarlög) frv. 130/1999, GÖ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 125. lþ.

[18:51]

Guðrún Ögmundsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég tel að það sé að ná mjög miklum árangri ef við sjáum það núna sem var ekki fyrirséð fyrir tveim mánuðum síðan, þ.e. að kominn er meiri hluti fyrir þessari breytingu á lögunum um staðfesta samvist. Það kalla ég árangur þessu máli til góðs. Þá er ég ánægð.