Fjarskipti

Föstudaginn 17. desember 1999, kl. 15:55:40 (3259)

1999-12-17 15:55:40# 125. lþ. 48.16 fundur 122. mál: #A fjarskipti# (heildarlög) frv. 107/1999, samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 125. lþ.

[15:55]

Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil endurtaka það sem virðist hafa farið fram hjá hv. þm. Ögmundi Jónassyni að stjórnarsáttmálinn gerir ráð fyrir því að undirbúa sölu Landssímans. Að því verki er unnið. Fyrsta skrefið er að tryggja lagarammann og að því verki vinnum við núna. Enginn ágreiningur er um það sem við erum að gera, ekki nokkur.