Frsm. minni hluta landbn. (Guðmundur Árni Stefánsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka svör hv. þm. Hjálmars Jónssonar. Hann staðfestir það sem ég sagði áðan að ekki væri ráð fyrir því gert að skerða höfuðstólinn. En ég vil hins vegar minna á það og geta þess að í frv. sjálfu og þeim lögum sem hér koma og verða væntanlega samþykkt frá hinu háa Alþingi eru engir fyrirvarar á þessu. Sjóðurinn rennur einfaldlega til Bændasamtakanna og Bændasamtökin geta svo sem gert hvað sem þau vilja við þessa sömu peninga og Alþingi hefur ekkert frekari tök á málinu eftir að þessi afgreiðsla er hér kláruð. Það er það sem ég vil undirstrika mjög klárlega og hvort menn hafi einhverjar hugmyndir um að gera þetta svona eða hinsegin í framtíðinni, það er allt gott og blessað, en Alþingi hefur ekkert forræði á málinu lengur. Þessir fjármunir renna einfaldlega til Bændasamtakanna og Bændasamtökin geta notað þessa peninga eins og þau vilja. Væntanlega munu þau fara vel með þá og trúi ég því, en þetta er kjarni málsins.
Hvað hitt varðar er það ekki undirliggjandi að þessa fjármuni þurfi til þess að fylgja þeim verkefnum eftir sem koma frá Framleiðsluráðinu. Það liggur fyrir og Bændasamtökin hafa sjálf undirstrikað að þeir fjármunir sem er að finna á fjárlögum og þjónustugjöld og annað því um líkt standi undir þessum verkefnum og ætla raunar að spara peninga. Þessir peningar eru því bara þarna á floti. Ég vildi taka af öll tvímæli með þessari tillögu minni að þeir rynnu til Lífeyrissjóðs bænda og til bændastéttarinnar og væri þar vel fyrir komið.