Frsm. 2. minni hluta samgn. (Lúðvík Bergvinsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Hér er á ferðinni algerlega ný lagatúlkun. Greinargerð gengur framar orðum laganna. Þetta er algerlega nýtt, virðulegi forseti, og ég vil segja það eins og er að gott væri að fá hæstv. samgrh. upp í háskóla og kenna mönnum þá nýju lögfræði sem hér hefur verið tekin upp. Með öðrum orðum, greinargerð gengur framar ákvæðum laganna. Það er algerlega nýtt og algerlega nýtt fyrir mér, virðulegi forseti, og ég játa á mig vanþekkingu ef þetta reynist rétt. Ég ætla bara að hætta þessari umræðu, virðulegi forseti, því ég sé að engu tauti verður komið við hæstv. samgrh.
Hitt sem ég gagnrýndi var kostnaðargreiningin og ég get þó tekið undir það eða kannski frekar fagnað yfirlýsingu hæstv. samgrh. hvað varðar fastagjaldið. Ég tek undir að vissulega á að greiða það verð sem kostar raunverulega að reka þetta. En ég þori að fullyrða það, virðulegi forseti, að það kostar enga 4 milljarða ef farið verður í tvöþúsundkallinn. Það kostar enga 4 milljarða tæpa að reka þetta net. Það er bara langur vegur þar í frá að ... (Samgrh.: Hvað veit þingmaðurinn um það?) Hann veit bara allt um það. Einhver kopar sem hefur legið 15--25 ár í jörðinni, þeir hljóta að vera að grafa aðra hverja leiðslu upp annan hvern dag. Hafa menn séð það, virðulegi forseti? Þetta er algerlega fráleitt og það er það sem ég er að gagnrýna og hæstv. ráðherra tók undir það að hann mundi tryggja það að menn mundu ekki offara í þessu og farið yrði mjög vandlega ofan í það kostnaðargreiningarmat sem Landssíminn hefur verið í. Ég verð að treysta því, virðulegi forseti, að Póst- og fjarskiptastofnun beri gæfu til þess að koma vitinu fyrir Landssímann í þessum efnum því að það er algerlega fráleitt. Ef það er rétt að það kosti 4 milljarða, er rétt að bjóða það út, virðulegi forseti, sem ég hef þó lesið í fjölmiðlum að hæstv. samgrh. vill ekki. Ef hægt er að greina þennan kostnað svona nákvæmlega, þá segi ég einfaldlega að við skulum bjóða hann út. Það er algerlega fráleitt að það kosti 4 milljarða að reka kopar sem hefur verið 15--25 ár í jörðinni að meðaltali. Það er algerlega fráleitt, virðulegi forseti.