Frsm. 2. minni hluta samgn. (Lúðvík Bergvinsson):
Virðulegi forseti. Umræðan í dag hefur verið löng og ströng. Menn hafa farið nokkuð víða yfir í tengslum við þetta frv. Það er að verða þokkalega vel rætt. Þó eru nokkur atriði sem ég held að nauðsynlegt sé að við förum yfir áður en þessari umræðu lýkur. Í nál. voru nokkur atriði sem ég hafði ekki gert fulla grein fyrir og ég ætla að byrja á að ræða þau örlítið. Þó er kannski vert að nefna í upphafi, af því að hv. þm. Hjálmar Árnason sagði hér í ræðu sinni að um þetta mál væri mikil og almenn sátt í samgn., að maður hefur á tilfinningunni að hv. þm. hafi ekki alveg fylgst með alla leið. Það liggur fyrir að minni hluti nefndarinnar ætlar að sitja hjá við afgreiðslu málsins. Ég held því að segja megi segja að það sé talsvert orðum aukið að um þetta frv. ríki allsherjarsátt. Ég hef farið yfir a.m.k. í tveimur ræðum í dag þau meginatriði sem 2. minni hluti samgn. telur gagnrýnisverð. Þó eru nokkur atriði sem ég hef ekki farið yfir. Ég ætla að leyfa mér að gera það hér í seinni ræðu minni.
Eitt af því sem við höfum gagnrýnt talsvert í þessari umræðu er sú kvöð sem lögð er á notendur þegar þeir í einstaka tilvikum vilja fara frá einu fjarskiptafyrirtæki til annars. Hjá nánast öllum gestum nefndarinnar kom fram að þeir lögðust gegn því að fjarskiptafyrirtæki sem viðkomandi notandi ætlaði að fara frá gæti innheimt gjald hjá notanda vildi hann halda símanúmeri sínu við flutning frá einu fyrirtæki til annars. Menn ræddu um að skilyrði af þessum toga væri líklegt til að hamla því að menn leituðu til þess fyrirtækis sem byði best kjörin. Ef fyrirtæki hefði þá aðstöðu að geta einhliða lagt á ákveðið gjald í því skyni koma í veg fyrir að viðkomandi notandi fari frá því mundi það hindra þá samkeppni sem að er stefnt í lögunum. Þetta gagnrýndum við harðlega í samgn., virðulegi forseti, en það fór eins og ýmislegt annað í þessu frv. Þegar að því kom að taka á þáttum sem stuðluðu að því markmiði sem að er stefnt í lögunum þá þótti meiri hluta nefndarinnar í of mikið lagt. Þar var ekki orðið við beiðni um okkar um að breyta þessu.
Í öðru lagi, virðulegi forseti, hefur verið talsvert umræða um það í dag að ekki geti talist heppilegt fyrir þennan markað, sem er að slíta barnsskónum og er að hefja för sem tíðkast hefur annars staðar, að einn og sami maður fari með meirihlutavald í stærsta fyrirtækinu jafnframt því að hafa möguleika á að hafa áhrif á þennan markað með reglugerðum. Við í minni hlutanum metum það svo að slíkt fyrirkomulag sé líklegt til að koma í veg fyrir að menn treysti sér inn á þennan markað. Menn treysta því einfaldlega ekki að ný fyrirtæki fái sömu meðhöndlun og þau sem þar eru fyrir.
Virðulegi forseti. Fleiri atriði voru gagnrýnd talsvert í umræðunni í samgn. Fjallað var um að í frv. væri kveðið á um að fyrirtæki sem starfrækja almenn fjarskiptanet eða almenna fjarskiptaþjónustu og uppfylla ákveðin skilyrði skuli skyldug til að semja um samtengingu sín á milli. Þessu var reyndar fagnað en hins vegar var vakin athygli á því að ef ekki tækist vel til í framkvæmd væri hætta á að markaðsráðandi aðili gæti tafið mál og gert þetta ákvæði marklítið eða marklaust. Þetta höfum við m.a. gagnrýnt, virðulegi forseti, í umræðunni um svokallaða heimtaug sem hefur verið talsvert mikið í umræðunni í dag. Fyrir þá sem lítið hafa kynnt sér þetta mál held ég að fullyrða megi að þeir sem hlustað hafa á umræðuna eru þó nokkru nær um það sem þar er á ferðinni.
Það vakti athygli mína, virðulegi forseti, að í viðtali í dag lýsir hæstv. samgrh. því yfir að hann telji það ekki heppilegt að bjóða út grunnnetið þrátt fyrir að fyrir liggi, eins og m.a. hefur komið fram í máli þess sem hér stendur og hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar, að fyrirséð er að allt tal um kostnaðargreiningu og kostnaðarmat muni valda verulegum vandræðum þegar fram líða stundir og muni kannski valda mestum deilum á meðan menn eru að fóta sig í nýju fjarskipta- og markaðsumhverfi sem verið er að reyna að búa til. Það vakti athygli mína að hæstv. samgrh. skyldi, í viðtali við Morgunblaðið, segja að hann teldi ekki heppilegt að fara þá leið að bjóða út grunnnetið.
Virðulegi forseti. Ég held að ég hafi nú farið nokkurn veginn yfir það sem ég tel að máli skipti og ætla því að láta staðar numið að sinni.