Framhaldsskólar

Föstudaginn 17. desember 1999, kl. 21:21:42 (3322)

1999-12-17 21:21:42# 125. lþ. 48.18 fundur 101. mál: #A framhaldsskólar# (aðlögunartími, fornám, samræmd lokapróf o.fl.) frv. 100/1999, Frsm. SAÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 125. lþ.

[21:21]

Frsm. menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) (andsvar):

Herra forseti. Um það síðasta sem hv. þm. Jón Bjarnason nefndi erum við sammála. Markmiðið með framhaldsskólalöggjöfinni var einmitt að efla starfsnám og unnið er mjög markvisst að því. Ég tel að sú vinna sé í mjög góðum farvegi og eigi eftir að skila okkur miklum árangri í framtíðinni.