Reynslusveitarfélög

Föstudaginn 17. desember 1999, kl. 22:42:28 (3336)

1999-12-17 22:42:28# 125. lþ. 48.23 fundur 109. mál: #A reynslusveitarfélög# (gildistími o.fl.) frv. 114/1999, Frsm. ArnbS
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 125. lþ.

[22:42]

Frsm. félmn. (Arnbjörg Sveinsdóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nál. félmn. um frv. til laga um breytingu á lögum reynslusveitarfélög, nr. 82/1994.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Elínu Blöndal og Hermann Sæmundsson frá félmrn. og Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson og Þórð Skúlason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Þá bárust umsagnir um málið frá Reykjavíkurborg, Fjarðabyggð, Akureyrarbæ, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Reykjanesbæ og Samtökum sveitarfélaga í Norðurlandskjördæmi vestra.

Í frv. er lagt til að gildistími laga um reynslusveitarfélög verði framlengdur til 1. janúar 2002 þar sem hluti þeirra tilraunaverkefna sem standa yfir hófst seinna en ráð var fyrir gert og fyrirsjáanlegt er að ekki verði fengin af þeim nægileg reynsla áður en gildistíminn rennur út. Einnig verða væntanlega viðamikil verkefni framlengd ef vilji reynslusveitarfélags og ráðherra er fyrir hendi.

Í frv. er lagt til að ákveðnar greinar um heimildir ráðherra til að víkja frá ákvæðum einstakra laga verði felldar brott. Í 5. gr. er lagt til að heimild umhvrh. til að víkja frá ákvæðum byggingarlaga, nr. 54/1978, verði felld brott. Í grg. með frv. segir að gert sé ráð fyrir að umhvrh. leggi samhliða frv. þessu fram frv. til breytinga á skipulags- og byggingarlögum þar sem mælt verði fyrir um þær heimildir sem tilraunaverkefni reynslusveitarfélaga byggjast á. Nokkur bið varð á því að frv. þetta kæmi fram og hefur nefndin því beðið með afgreiðslu málsins. Þar sem umhvn. Alþingis hefur nú lagt fram frv. til laga um breytingu á skipulags- og byggingarlögum sem ætlað er að taka á þessu máli telur nefndin að málið sé leyst á viðunandi hátt. Hæstv. forseti, það er það frv. sem hv. þm. Ólafur Örn Haraldsson, formaður umhvn., var að mæla fyrir hér áðan.

Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt.

Hv. þm. Ólafur Örn Haraldsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Þeir sem skrifa undir nál. eru auk þeirrar sem hér stendur hv. þingmenn Pétur H. Blöndal, Valgerður Sverrisdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir, Drífa Hjartardóttir, Kristján L. Möller, Kristján Pálsson og Steingrímur J. Sigfússon með fyrirvara.