Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):
Hæstv. forseti. Er hæstv. félmrh. að loka Barnahúsinu? Það er vissulega af hinu góða þegar hv. þingmenn ræða um stöðu barna í okkar þjóðfélagi en umræðan verður að byggjast á staðreyndum en ekki órökstuddum fullyrðingum eða villandi spurningum. Þeim hef ég reyndar svarað að öllu leyti hvað varðar málefni er snúa að mínu ráðuneyti.
Ég vil ítreka að eftir þær breytingar sem gerðar voru á lögum um meðferð opinberra mála þá hefur réttarstaða barna og ungmenna sem eru brotaþolar í kynferðisafbrotamálum batnað til muna. Með því höfum við stigið stórt skref fram á við við rannsókn kynferðisafbrotamála þegar börn eiga í hlut.
Vitnað var til viðtals við dómara á Akureyri áðan. Ég veit ekki betur en sá aðili hafi einmitt lagt áherslu á fjárveitingar til þessarar aðstöðu við Héraðsdóm Norðurlands eystra. Dómsmrn. eða dómsmrh. er ekki að breyta neinu hér varðandi Barnahúsið. Ég vil líka minna hv. þingmenn á sjálfstæði dómara í sínum störfum, m.a. til málsmeðferðar. Ég er hins vegar sannfærð um að þeir munu velja besta kostinn hverju sinni sem þjónar hagsmunum barnsins. Þessar breytingar eru ekki síst fram komnar vegna ábendingar frá umboðsmanni barna.
Varðandi skýrslutökur af börnum þá fara þær fram í sérútbúnum herbergjum á lögreglustöðvum á hinum Norðurlöndunum en slíkri aðstöðu er komið fyrir við dómstóla hér. Því dæma sig sjálf þau ummæli sem höfð hafa verið eftir forstjóra Barnaverndarstofu í fjölmiðlum að ef dómararar ætli að yfirheyra ung börn í dómshúsum þá sé það frumstæðasta form í Evrópu. Ég tek það skýrt fram að skýrslutökur barna fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fara ekki fram í réttarsal. Þær fara fram í sérútbúinni aðstöðu.
Ýmsir hafa lýst áhyggjum af framtíð Barnahúss. Það vekur hins vegar furðu mína að tilvist þess skuli velta á því samkvæmt því sem fram hefur komið í fjölmiðlum að skýrslutökur af ungum börnum í meintum kynferðisbrotamálum fari ávallt þar fram. Það væri að jafnaði ein skýrslutaka á mánuði sem starfsgrundvöllur Barnahúss veltur á. Ég spyr því, hæstv. forseti: Er þessi málflutningur sannfærandi?