Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Laugardaginn 18. desember 1999, kl. 13:51:19 (3425)

1999-12-18 13:51:19# 125. lþ. 49.19 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, Frsm. meiri hluta HjÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur, 125. lþ.

[13:51]

Frsm. meiri hluta iðnn. (Hjálmar Árnason) (andsvar):

Herra forseti. Ég er nýkominn með í hendurnar þær upplýsingar sem mér tókst að fá frá Hollustuvernd. En ég vek athygli á því, eins og ég vék að í ræðu minni, að við erum fyrst og fremst að fjalla um Fljótsdalsvirkjun og iðnn. hefur nægan tíma til að skoða þetta mál eins og þingið að öðru leyti. Ef embættisfærslur eru vafasamar höfum við nægan tíma til að skoða þær. Ég varpa þessu fram vegna þess að umræðan hefur þróast eins og þetta væri eitt mál. Ég vek enn athygli á því að þetta eru tvö aðskilin og sjálfstæð mál.