Frsm. 1. minni hluta iðnn. (Árni Steinar Jóhannsson) (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég bendi hv. formanni iðnn., Hjálmari Árnasyni, á að það er litlum vandkvæðum bundið að kalla saman iðnn. hvenær sem er hér þessa síðustu daga. Það má heita að við vinnum út í eitt og séum hér allan sólarhringinn. En mér finnst ámælisvert og áhyggjuefni ef hátt settir opinberir embættismenn eru ásakaðir héðan úr ræðustóli á þennan hátt. Telur þá hv. formaður iðnn., Hjálmar Árnason, kannski ástæðu til að reka manninn?