Frsm. meiri hluta iðnn. (Hjálmar Árnason) (andsvar):
Herra forseti. Í tilefni af þeim spurningum sem hv. þm. beinir til mín er rétt að vekja athygli á því að við erum hér í löggjafarsamkomu en við höfum falið framkvæmdarvaldinu ýmsa praktíska þætti svo sem að semja um orkuverð. Ég held ég kjósi að svara spurningunni þannig. Ég vék reyndar í ræðu minni m.a. að arðsemisþáttunum eins og fjallað hefur verið um þá í fjölmiðlum, síðast í gærkvöldi með yfirlýsingum frá stjórn Landsvirkjunar. Ég held ég kjósi að svara því á þann hátt að orkuverðið þarf að vera þannig að Landsvirkjun hagnist á málinu. Síðan er það mat Landsvirkjunar, stjórnar og forstjóra að ákveða hvenær Landsvirkjun telur sig hafa fengið það ásættanlegt verð að stofnunin hagnist á því. Ef þeir gera sig hins vegar seka um að semja af sér þá á að sjálfsögðu að draga þá til ábyrgðar. En ég ber fullt traust bæði til forstjóra og stjórnar Landsvirkjunar. Þeir hafa enda lýst því yfir hvert markmiðið er.