Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Laugardaginn 18. desember 1999, kl. 13:59:21 (3433)

1999-12-18 13:59:21# 125. lþ. 49.19 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, Frsm. meiri hluta HjÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur, 125. lþ.

[13:59]

Frsm. meiri hluta iðnn. (Hjálmar Árnason) (andsvar):

Herra forseti. Ég nefndi í ræðu minni að hugsanlega væri þetta síðasta deilan en dró svo í land með það. Ég bætti við að líklega munum við endalaust deila um árekstra manns og náttúru jafnvel þó rammaáætlunin liggi fyrir innan þriggja ára sem hún hefði auðvitað átt að gera fyrir nokkru en það hafði ekki verið gert. Við erum að vinna núna lögum samkvæmt. Svo lengi sem menn hafa tilfinningar til náttúrunnar munu verða deilur vegna óhjákvæmilegra árekstra milli manns og náttúru af því að mannskepnan er þurftarfrek.