Frsm. 2. minni hluta iðnn. (Rannveig Guðmundsdóttir) (um fundarstjórn):
Virðulegi forseti. Mér finnst þetta heldur dapurt, sérstaklega það að formaður iðnn. stendur í ræðustól Alþingis og snýst eins og nafur í gati í mjög alvarlegu máli. Hann hefur komið með þungar ásakanir á skipulagsstjóra ríkisins og gert embætti hans tortryggilegt á röngum forsendum. Hann hefur dregið fram vangaveltur sem skipulagsstjóri kynnti fyrir okkur að hefðu verið upphaflegar hugmyndir þeirra á stofnuninni um hvernig hefði átt að fara með álverið. En það sem skiptir máli eru beinu upplýsingarnar sem Skipulagsstofnun lagði fram á fundi iðnn. og ég óskaði eftir að fá skriflegar frá stofnuninni. Ég er með þær skriflegar í höndum frá stofnuninni. Herra forseti. Formaður iðnn. hlýtur að heyra illa vegna þess að ég las þær hér og ég óska eftir að þingmenn taki eftir:
,,Skipulagsstofnun lagði til við framkvæmdaraðila`` --- lesist Landsvirkjun --- ,,að tilkynnt yrði`` --- 29. september --- ,,til stofnunarinnar frummat á umhverfisáhrifum 120 þús. tonna álvers og að kynnt yrðu áform um fyrirhugaða stækkun.`` --- Þetta er tillaga Skipulagsstofnunar ríkisins til framkvæmdaraðila. --- ,,Á þetta sjónarmið var ekki fallist. Þann 12. október 1999 tilkynnti framkvæmdaraðili ...``
(Forseti (GuðjG): Hv. þm. hefur orðið til að ræða fundarstjórn forseta, ekki til að lesa upp úr gögnum.)
Herra forseti. Þetta er stóra málið sem við erum að ræða hér. Þetta eru ekki sjónarmið mín eða skoðanir heldur ritaðar upplýsingar frá Skipulagsstofnun. Ég er að upplýsa þingið með það ... (Gripið fram í: Þetta tengist ekki fundarstjórn ...) Það er Landsvirkjun, út af þeirri umræðu sem hér hefur farið fram um það hvort ætti að kalla fund saman í iðnn. eða hvort formaður iðnn. óski eftir ...
(Forseti (GuðjG): Forseti minnir á að þessi umræða á heima í umræðum um dagskrármálið en ekki um fundarstjórn forseta. Ég bið hv. þingmenn að halda sig við fundarstjórn forseta.)
Herra forseti. Formaður iðnn. hefur kallað þetta yfir sig. Ég skil mjög vel að stjórnarmeirihlutinn vilji þagga niður rödd mína þegar ég er að upplýsa um þetta og það verða síðustu orð mín, herra forseti, að í bréfi frá framkvæmdaraðila, þ.e. Landsvirkjun, 12. október, óskar hún eftir að tilkynnt sé 480 þús. tonna álver og (KHG: Þetta er bara umræðuefnið, ekki um fundarstjórn forseta. Þetta er bara móðgun við ...) þess vegna er það auglýst, herra forseti.