Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Mánudaginn 20. desember 1999, kl. 12:35:30 (3526)

1999-12-20 12:35:30# 125. lþ. 50.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÞBack (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 125. lþ.

[12:35]

Þuríður Backman (andsvar):

Það má eiginlega segja að ekki sé ástæða til að endurtaka mistökin. Það vantar til viðbótar aðalskipulag, það vantar deiliskipulag. Grunnurinn er veikur og þó svo að hafi verið unnið við aðrar framkvæmdir eins og hæstv. ráðherra lýsti vantar þarna upp á og ekki er ástæða til þess að endurtaka þá vinnu sem hefur verið í gangi.