Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Mánudaginn 20. desember 1999, kl. 12:59:36 (3539)

1999-12-20 12:59:36# 125. lþ. 50.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÞSveinb (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 125. lþ.

[12:59]

Þórunn Sveinbjarnardóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég bendi hv. þm. Kristni H. Gunnarssyni á að hann mun líklega fá hér tækifæri til að greiða atkvæði brtt. Samfylkingarinnar um að fyrirhugaðar framkvæmdir við Fljótsdalsvirkjun fari í umhverfismat áður en frekari ákvarðanir verða teknar. Og ég treysti því enn að hv. alþingismenn muni koma til vits og samþykkja þá tillögu. Síðan kemur í ljós hvernig tillaga hæstv. iðnrh. verður afgreidd.