Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Mánudaginn 20. desember 1999, kl. 13:00:22 (3540)

1999-12-20 13:00:22# 125. lþ. 50.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÓÖH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 125. lþ.

[13:00]

Ólafur Örn Haraldsson (andsvar):

Herra forseti. Ég óska eftir því að hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir og ein af þingmönnum í umhvn. lýsi í fáum orðum þeirri samstöðu sem við fimmmenningarnir í umhvn. höfðum um niðurstöðu málsins. Það liggur ljóst fyrir að meiri hluti þingmanna, ég orða það svo og þannig er það rétt orðað, í umhvn. er sammála að öllu leyti um þetta mál þó svo að kosið hafi verið að skipta liði við formlega afgreiðslu málsins.