Kristján Pálsson (andsvar):
Herra forseti. Út af þessu síðasta sem hv. þm. Össur Skarphéðinsson sagði þá kom hv. þm. Ólafur Örn Haraldsson í stól í dag og upplýsti að þessir tveir minni hlutar hefðu staðið saman að samningu álitsins þannig að þetta kemur beint frá öðrum þeirra aðila sem skrifa undir. (ÖS: Ég bara lendi svona inn í ...) Já, en bara svo að hv. þm. viti það, en ég heyri að hann er búinn að setja sig vel inn í málið og hélt alveg ljómandi góða ræðu en spyr spurninga, m.a. um votlendið sem hæstv. umhvrh. hefur svarað ágætlega. Þingmaðurinn spyr um hólma og hvort það sé raunveruleg mótvægisaðgerð og svo um þessa hugmynd um stálþil í kringum hraukana sem ég hef hvergi heyrt nema frá honum.
En það kemur fram í svari Landsvirkjunar við hugmyndum 1. minni hluta um mótvægisaðgerðir, það kemur skriflegt svar og það fylgir með áliti okkar, það fylgir líka með skýrslu iðnn. þannig að það svar er skriflegt, það er ekkert leyndarmál og er ekki eins og það sé að koma í gegnum síma eða með þeim hætti að einhver einn megi túlka það á sinn hátt. En það sem stendur hér, með leyfi forseta, er t.d. að Landgræðslan efli og styrki gróður í Suðurdal þar sem gróðureyðing er fyrir hendi og hugsanlega styrkja Héraðsskógaverkefnið, þetta er uppgræðsluverkefni, með leyfi forseta. Loks hefur verið ræddur sá möguleiki að finna heppilegt uppþurrkað land á Austurlandi og endurgera þar votlendi.
Fleira kemur hér fram:
,,Meðal þess sem rætt hefur verið um að gera á Eyjabakkasvæðinu er að mynda eyju eða eyjar úr uppgreftri úr aðrennslisskurði að göngum á stíflustæði þar nærri, en þó er ólíklegt að þær gagnist fuglalífi svæðisins svo nærri umferð ferðamanna.``