Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir):
Virðulegur forseti. Um miðjan nóvember hafði norski sendiherrann samband við umhvrn. og óskaði eftir viðtali við mig. Þar sem ég er samstarfsráðherra Norðurlandanna og hann er nýr í starfi þá ákvað ég að verða við þeirri beiðni, enda sjálfsagt mál. Okkar samtal var mjög vinsamlegt og þar bar ýmislegt á góma. Við ræddum stjórnmál á Íslandi og efnahagsmál mjög almennt. Virkjunarmál og bygging álvers á Reyðarfirði voru meðal þess sem þar barst í tal. Og það er af og frá að ég hafi í þessu spjalli okkar látið að því liggja að það gæti haft áhrif á samskipti þessara frændþjóða ef Norsk Hydro hætti við þátttöku í byggingu álvers á Austurlandi.
Ég fékk þessa skýrslu í hendur nú fyrir skömmu, í morgun, og hef lesið hana. Þar kemur fram hjá norska sendiherranum að ég hafi sagt að ríkisstjórnin hafi lagt áherslu á að ná málinu fram og að ekki væru allir sammála um þetta mál í þjóðfélaginu. Ég spyr: Er það eitthvað nýtt? Það er alveg ljóst að ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á málið og það eru ekki allir sammála um það í þjóðfélaginu. Síðan koma vangaveltur sendiherrans þar á eftir og þar er ýmislegt sagt sem mér heyrist að verið sé að reyna að snúa upp á mig. En ég ber enga ábyrgð á vangaveltum sendiherrans. Og það er ekkert í okkar samtali og því plaggi sem ég hef lesið í morgun sem er hægt að túlka eins og sem mér heyrist að t.d. að fjölmiðlar hafi reynt að gera í morgun. Íslensk stjórnvöld hafa alltaf meðhöndlað þetta mál þannig að hér sé um að ræða samskipti viðskiptalegs eðlis við Norsk Hydro. Þetta er ekki pólitískt mál á milli ríkjanna. Þetta er viðskiptamál. Hins vegar hafa andstæðingar virkjunarinnar, stjórnarandstæðingar og fleiri andstæðingar, reynt að snúa þessu upp í pólitískt deilumál og það má segja að það endurspeglist í skýrslu norska sendiherrans.