Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 18:02:34 (3675)

1999-12-21 18:02:34# 125. lþ. 51.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÖJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 125. lþ.

[18:02]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Þessi tillaga felur í sér tvennt, þ.e. stuðning við Fljótsdalsvirkjun með sama orðalagi og í þáltill. ríkisstjórnarinnar. Hins vegar er í síðari hlutanum tekið undir umhverfismat. En þar sem tillagan í heild sinni felur í sér stuðning við virkjun þótt skilyrtur sé og þar með að Eyjabökkum verði sökkt, erum við henni andvíg. Ég segi nei.