Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 18:10:11 (3680)

1999-12-21 18:10:11# 125. lþ. 51.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, BH (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 125. lþ.

[18:10]

Bryndís Hlöðversdóttir:

Herra forseti. Hér er verið að afgreiða viðamikið mál sem gengur út á að sneiða fram hjá almennum leikreglum um umhverfismat. Lögleg má þessi leið vera, herra forseti, en umfram allt er hún siðlaus. Á slík vinnubrögð get ég ekki fallist og segi því nei.