Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 18:12:47 (3683)

1999-12-21 18:12:47# 125. lþ. 51.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, GuðjG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 125. lþ.

[18:12]

Guðjón Guðmundsson:

Herra forseti. Hér er á ferðinni langstærsta byggðamál sem rekið hefur á fjörur Alþingis í háa herrans tíð. Fljótsdalsvirkjun og álver í Reyðarfirði mun stöðva fólksfækkun á Austurlandi, auka fjölbreytni atvinnulífsins og skapa mikinn fjölda nýrra starfa. Ég minni á eindreginn vilja íbúa Austurlands sem speglast í ályktun sveitarstjórnarmanna á svæðinu sem samþykktu með 41:2 atkvæðum að mæla með þessum framkvæmdum. Ég styð þennan eindregna vilja heimamanna og segi já.