Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 18:28:52 (3701)

1999-12-21 18:28:52# 125. lþ. 51.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, SvanJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 125. lþ.

[18:28]

Svanfríður Jónasdóttir:

Herra forseti. Ég hef fremur verið í hópi náttúrunýtingarsinna en náttúruverndarsinna en framganga ríkisstjórnarinnar og vinnubrögð ásamt upplýsingum sem komið hafa fram m.a. um arðsemi framkvæmdanna auk þess sem tillaga um umhverfismat hefur nú verið felld gera það að verkum að ég greiði atkvæði gegn framhaldi framkvæmda og segi nei.