Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 18:29:34 (3702)

1999-12-21 18:29:34# 125. lþ. 51.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, GIG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 125. lþ.

[18:29]

Gunnar Ingi Gunnarsson:

Herra forseti. Þingmenn Frjálslynda flokksins greiða ekki atkvæði í þessari atrennu enda á eftir að greiða atkvæði um þá viðaukatillögu sem við erum flutningsmenn að en þar er gert ráð fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Ég greiði ekki atkvæði.