Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 18:37:09 (3709)

1999-12-21 18:37:09# 125. lþ. 51.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÁSJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 125. lþ.

[18:37]

Árni Steinar Jóhannsson:

Virðulegi forseti. Mér finnst málatilbúnaður hér með ólíkindum. Ég er hryggur yfir því að þjóðinni skuli vera neitað um nútímaleg vinnubrögð við upphaf nýrrar aldar og að fram fari lögformlegt umhverfismat á stærstu fjárfestingu Íslandssögunnar. Ég segi nei.