Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 18:40:36 (3713)

1999-12-21 18:40:36# 125. lþ. 51.4 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÁSJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 125. lþ.

[18:40]

Árni Steinar Jóhannsson:

Virðulegur forseti. Nú þegar þjóðinni hefur verið neitað um lögformlegt umhverfismat á Fljótsdalsvirkjun þá tel ég að sú tillaga sem hér er fram borin, viðaukatillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu, sé leið til þess að sætta þjóðina og segi því já.