Svanfríður Jónasdóttir:
Herra forseti. Þessi grein, stafliður b, er m.a. um það að frændur mínir úr Grímsey þurfi í framtíðinni að taka próf í svartfugli til að mega veiða hann.
Herra forseti. Með því að samþykkja greinina væri ég komin of langt frá uppruna mínum. Ég greiði því ekki atkvæði.