Frestun á fundum Alþingis

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 21:55:22 (3750)

1999-12-21 21:55:22# 125. lþ. 52.10 fundur 300. mál: #A frestun á fundum Alþingis# þál. 5/125, forsrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur, 125. lþ.

[21:55]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan hljóðar svo:

,,Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 21. desember 1999 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 1. febrúar 2000.``

Tillagan skýrir sig sjálf.