Jólakveðjur

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 21:56:35 (3751)

1999-12-21 21:56:35# 125. lþ. 52.93 fundur 257#B jólakveðjur#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur, 125. lþ.

[21:56]

Forseti (Halldór Blöndal):

Þá er komið að lokum seinasta fundar Alþingis á þessu ári. Jólahátíðin er í nánd og gefst nú hv. alþm. og starfsfólki Alþingis tækifæri til að vera samvistum við sína nánustu um hátíðarnar og njóta með þeim friðsemdar jólanna eftir annasamar vikur.

Ég færi alþingismönnum öllum svo og starfsfólki Alþingis bestu óskir um gleðilega og friðsæla jólahátíð og færi þeim bestu þakkir fyrir samstarfið á því ári sem senn er á enda. Þeim sem eiga um langan veg heim að fara óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og bið þess að við megum öll hittast heil á nýju ári.

Landsmönnum öllum sendi ég mínar bestu jóla- og nýársóskir.