Þingfrestun

Þriðjudaginn 21. desember 1999, kl. 21:58:59 (3754)

1999-12-21 21:58:59# 125. lþ. 52.96 fundur 259#B þingfrestun#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur, 125. lþ.

[21:58]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Forseti Íslands gjörir kunnugt: ,,Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 125. löggjafarþings, frá 21. desember 1999 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 1. febrúar árið 2000.

Gjört í Reykjavík, 21. desember 1999.

Ólafur Ragnar Grímsson.

------------------

Davíð Odsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

Samkvæmt þessu umboði og með vísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 125. löggjafarþings, er frestað.

Leyfi ég mér að óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, gleðilegra jóla og farsæls nýárs.