Fundargerð 125. þingi, 0. fundi, boðaður 1999-10-01 13:30, stóð 14:11:09 til 14:28:37 gert 4 11:1
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

föstudaginn 1. okt.


Þingsetning.

Árið 1999, föstudaginn 1. október, var hundrað tuttugasta og fimmta löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það hundraðasta og annað aðalþing í röðinni en hundrað og fertugasta samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu kl. 1.15 miðdegis og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 1.30. Séra Skúli S. Ólafsson steig í stólinn og lagði út af upphafi Matteusarguðspjalls.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Arnbjörg Sveinsdóttir, 2. þm. Austurl.
  2. Árni R. Árnason, 11. þm. Reykn.
  3. Árni Johnsen, 1. þm. Suðurl.
  4. Árni Steinar Jóhannsson, 6. þm. Norðurl. e
  5. Árni M. Mathiesen, 1. þm. Reykn.
  6. Ásta R. Jóhannesdóttir, 15. þm. Reykv.
  7. Ásta Möller, 19. þm. Reykv.
  8. Björn Bjarnason, 2. þm. Reykv.
  9. Bryndís Hlöðversdóttir, 9. þm. Reykv.
  10. Davíð Oddsson, 1. þm. Reykv.
  11. Drífa Hjartardóttir, 4. þm. Suðurl.
  12. Einar K. Guðfinnsson, 1. þm. Vestf.
  13. Einar Oddur Kristjánsson, 5. þm. Vestf.
  14. Einar Már Sigurðarson, 4. þm. Austurl.
  15. Finnur Ingólfsson, 12. þm. Reykv.
  16. Geir H. Haarde, 3. þm. Reykv.
  17. Gísli S. Einarsson, 5. þm. Vesturl.
  18. Guðjón Guðmundsson, 4. þm. Vesturl.
  19. Guðjón A. Kristjánsson, 4. þm. Vestf.
  20. Guðmundur Hallvarðsson, 8. þm. Reykv.
  21. Guðmundur Árni Stefánsson, 6. þm. Reykn.
  22. Guðni Ágústsson, 2. þm. Suðurl.
  23. Guðrún Ögmundsdóttir, 11. þm. Reykv.
  24. Gunnar Birgisson, 2. þm. Reykn.
  25. Halldór Ásgrímsson, 1. þm. Austurl.
  26. Halldór Blöndal, 1. þm. Norðurl. e.
  27. Hjálmar Árnason, 10. þm. Reykn.
  28. Hjálmar Jónsson, 1. þm. Norðurl. v.
  29. Ingibjörg Pálmadóttir, 2. þm. Vesturl.
  30. Ísólfur Gylfi Pálmason, 5. þm. Suðurl.
  31. Jóhann Ársælsson, 3. þm. Vesturl.
  32. Jóhanna Sigurðardóttir, 5. þm. Reykv.
  33. Jón Bjarnason, 5. þm. Norðurl. v.
  34. Jón Kristjánsson, 3. þm. Austurl.
  35. Katrín Fjeldsted, 14. þm. Reykv.
  36. Kolbrún Halldórsdóttir, 17. þm. Reykv.
  37. Kristinn H. Gunnarsson, 3. þm. Vestf.
  38. Kristján L. Möller, 3. þm. Norðurl. v.
  39. Kristján Pálsson, 8. þm. Reykn.
  40. Lára Margrét Ragnarsdóttir, 6. þm. Reykv.
  41. Lúðvík Bergvinsson, 6. þm. Suðurl.
  42. Margrét Frímannsdóttir, 3. þm. Suðurl.
  43. Ólafur Örn Haraldsson, 16. þm. Reykv.
  44. Páll Pétursson, 2. þm. Norðurl. v.
  45. Pétur H. Blöndal, 10. þm. Reykv.
  46. Rannveig Guðmundsdóttir, 4. þm. Reykn.
  47. Sighvatur Björgvinsson, 2. þm. Vestf.
  48. Sigríður Jóhannesdóttir, 9. þm. Reykn.
  49. Sigríður A. Þórðardóttir, 3. þm. Reykn.
  50. Siv Friðleifsdóttir, 7. þm. Reykn.
  51. Sólveig Pétursdóttir, 4. þm. Reykv.
  52. Steingrímur J. Sigfússon, 3. þm. Norðurl. e.
  53. Sturla Böðvarsson, 1. þm. Vesturl.
  54. Svanfríður Jónasdóttir, 4. þm. Norðurl. e.
  55. Sverrir Hermannsson, 18. þm. Reykv.
  56. Tómas Ingi Olrich, 5. þm. Norðurl. e.
  57. Valgerður Sverrisdóttir, 2. þm. Norðurl. e.
  58. Vilhjálmur Egilsson, 4. þm. Norðurl. v.
  59. Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 5. þm. Reykn.
  60. Þórunn Sveinbjarnardóttir, 12. þm. Reykn.
  61. Þuríður Backman, 5. þm. Austurl.
  62. Ögmundur Jónasson, 13. þm. Reykv.
  63. Össur Skarphéðinsson, 7. þm. Reykv.


Forseti Íslands setur þingið.

[14:11]

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, til ræðustóls og las forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman föstudaginn 1. október.

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Davíð Oddsson, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.


Ávarp aldursforseta.

[14:23]

Aldursforseti, Páll Pétursson félagsmálaráðherra, bauð alþingismenn velkomna til starfa og lét í ljós þá ósk að störf Alþingis mættu verða alþingismönnum til sóma og landi og þjóð til heilla.

Fundi frestað kl. 14:28.

---------------