Ferill 97. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 98 — 97. mál.
Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um störf nefnda um jarðskjálftavá.
Frá Guðmundi Hallvarðssyni.
1. Hvaða nefndir á vegum umhverfisráðuneytisins hafa fjallað um jarðskjálftavá?
2. Hafa nefndirnar skilað skýrslu um störf sín?
3. Hverjar voru helstu niðurstöður athugana þeirra?
4. Eru einhverjar nefndir starfandi í þessum málaflokki?
5. Hvenær eru áætluð starfslok þeirra nefnda sem nú eru að störfum?
6. Hyggst ráðherra kynna niðurstöður nefndanna fyrir Alþingi?
Skriflegt svar óskast.