Ferill 5. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 485  —  5. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.


(Eftir 2. umr., 17. des.)


1. gr.

    Í stað orðanna „skulu þá 80% af óráðstöfuðum hluta persónuafsláttar annars makans bætast“ í 2. málsl. 2. mgr. A-liðar 68. gr. laganna kemur: skal þá óráðstöfuðum persónuafslætti annars makans bætt.

2. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:
    Þrátt fyrir ákvæði 2. málsl. 2. mgr. A-liðar 68. gr. laganna skal óráðstöfuðum persónuafslætti annars hjóna, sem skattlagt er samkvæmt ákvæðum 63. gr., bætt við persónuafslátt hins með eftirfarandi hætti:
     a.      Við álagningu tekjuskatts á árinu 2001 vegna tekna á árinu 2000 skal bæta 85% af óráðstöfuðum hluta persónuafsláttar annars makans við persónuafslátt hins.
     b.      Við álagningu tekjuskatts á árinu 2002 vegna tekna á árinu 2001 skal bæta 90% af óráðstöfuðum hluta persónuafsláttar annars makans við persónuafslátt hins.
     c.      Við álagningu tekjuskatts á árinu 2003 vegna tekna á árinu 2002 skal bæta 95% af óráðstöfuðum hluta persónuafsláttar annars makans við persónuafslátt hins.


3. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2000 og koma til framkvæmda við álagningu tekjuskatts á árinu 2001 vegna tekna á árinu 2000 og við staðgreiðslu á því ári.