Ferill 402. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 660  —  402. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um úttekt á aðstöðu til hestamennsku.

Flm.: Jónas Hallgrímsson, Jón Kristjánsson, Árni Johnsen,


Ísólfur Gylfi Pálmason, Einar Már Sigurðarson.



    Alþingi ályktar að fela landbúnaðarráðherra að skipa nefnd sem geri úttekt á aðstöðu til hestamennsku á landsbyggðinni og leggi fram tillögur um stuðning ríkissjóðs við uppbyggingu hennar. Nefndin skili áliti fyrir 1. október næstkomandi.

Greinargerð.


    Undanfarin missiri hafa einstaklingar, félög og hið opinbera sem kunnugt er sameinast um að auka kynningu og sölu á íslenska hestinum, bæði innan lands og utan. Samhliða þessu viðamikla átaki hafa verið byggðar nútímalegar reiðhallir sem jafnframt þjóna víða sem félagsmiðstöðvar hestamanna. Á þetta einkum við um suðvestanvert landið og Norðvesturland. Landbúnaðarráðuneyti og Reykjavíkurborg hafa stutt þetta málefni með myndarlegum fjárframlögum. Meðal annars hefur verið gerður samningur um miðstöð íslenska hestsins í Skagafirði. Einnig hafa einstaklingar í greininni byggt upp slík mannvirki og hafa í sumum tilfellum notið aðstoðar fyrirtækja í ferðaþjónustu. Landsvæði sem eru fjarri höfuðborgarsvæðinu, frá Eyjafirði norður og austur um land, allt til Hellu á Rangárvöllum, virðast eiga erfiðara uppdráttar hvað sölu- og markaðsmál áhrærir og er þá ekki alltaf lélegum hrossum um að kenna, nema síður væri. Frekar má nefna fjarlægð frá aðalkomustað erlendra ferðamanna til landsins ásamt aðstöðuleysi þeirra sem hlut eiga að máli. Er nú svo komið að höfuðborgarsvæðið og nærsveitir austan fjalls ásamt afmörkuðum hluta Norðurlands hafa yfirburðastöðu vegna hagstæðrar staðsetningar og framúrskarandi möguleika til þjálfunar, sýninga og sölu á hrossum. Af byggðaástæðum er því tímabært að spyrna við fótum og leita leiða til úrbóta fyrir þau landsvæði sem fjærst liggja markaðinum.
    Stefna stjórnvalda hefur verið að æska þessa lands skuli eiga jafnan rétt til náms og þar með félagslífs, óháð búsetu. Ungt fólk víða um land hefur í auknum mæli haslað sér völl í hestamennsku, bæði í leik og starfi. Vitað er að nýjar og glæstar reiðhallir ásamt keppnisvöllum utan dyra skapa mikinn aðstöðumun milli unglinga sem annars vegar eiga greiða leið að góðu og heilbrigðu félagsstarfi þar sem aðstaða er fyrir hendi til tamningar og þjálfunar hesta og þeirra sem búa í dreifbýli og enga aðstöðu hafa.
    Eðlilegt er að móta stuðning ríkisvaldsins við uppbyggingu í greininni og gengur þingsályktunartillagan út á að hestamennskan verði nýtt sem sóknarfæri fyrir dreifðar byggðir landsins.