Ferill 499. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 783  —  499. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um ríkisjarðir.

Frá Drífu Hjartardóttur.



     1.      Hversu margar jarðir eru í eigu ríkisins?
     2.      Hvernig skiptast þær eftir sýslum?
     3.      Hversu margar þeirra eru:
                  a.      nýttar af embættismönnum ríkisins,
                  b.      nýttar af bændum,
                  c.      nýttar af öðrum,
                  d.      í eyði?
     4.      Hversu margar ríkisjarðir voru seldar árin 1991–2000?
     5.      Hversu margar jarðir keypti ríkið á sama tíma?
     6.      Hvert er áætlað heildarsöluverðmæti ríkisjarða á núgildandi verðlagi?
     7.      Er áætlað að selja ríkisjarðir, og þá hverjar?
     8.      Hversu miklar tekjur hafði ríkissjóður af ríkisjörðum árið 1999?
     9.      Hver voru gjöld ríkissjóðs af ríkisjörðum árið 1999?


Skriflegt svar óskast.