Ferill 524. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1157  —  524. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins, nr. 73 18. maí 1990.

Frá iðnaðarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Þorgeir Örlygsson, Svein Þorgrímsson, Guðjón Axel Guðjónsson og Eyvind Gunnarsson frá iðnaðarráðuneyti, Þorkel Helgason frá Orkustofnun, Jóhann Sigurjónsson frá Hafrannsóknastofnuninni, Jón Steindór Valdimarsson frá Samtökum iðnaðarins og Sigurð Helgason frá Björgun ehf. Umsagnir bárust um málið frá Orkustofnun, sjávarútvegsráðuneyti, umhverfisráðuneyti, landbúnaðarráðuneyti, Hafrannsóknastofnuninni, skrifstofu rektors Háskóla Íslands og Björgun ehf.
    Í frumvarpinu er að finna ákvæði um heimild iðnaðarráðherra til að ákveða eða gera samninga um endurgjald fyrir hagnýtingu auðlinda hafsbotnsins innan íslenskrar lögsögu.
    Nefndin lítur svo á að sú heimild sem iðnaðarráðherra er fengin með ákvæðum frumvarpsins sé til þess fallin að koma á samræmi milli reglna um meðferð og nýtingu auðlinda Íslands, en í þjóðlendulögum, nr. 58/1998, er að finna ákvæði um heimild forsætisráðherra eða sveitarstjórnar eftir atvikum til að ákvarða eða semja um endurgjald fyrir þá nýtingu réttinda sem heimiluð er samkvæmt lögunum.
    Nefndin bendir á að með ákvæðum frumvarpsins er réttur þeirra sem nú hafa leyfi til leitar og hagnýtingar efna á, í eða undir hafsbotni ekki skertur að neinu leyti. Þeim aðilum er frjálst að sækja um leyfi á ný og eðlilegt að það verði veitt að uppfylltum þeim skilyrðum sem sett eru í frumvarpinu.
    Nefndin leggur til nokkrar breytingar á frumvarpinu. Að hluta er um að ræða orðalagsbreytingar, en lagðar eru til eftirfarandi efnisbreytingar.
     1.      Lagt er til að netlög í stöðuvatni verði ekki skilgreind sérstaklega þar sem frumvarpið tekur eingöngu til hafsbotnins og því aðeins þörf á að skilgreina netlög í sjó.
     2.      Lagt er til að möguleikar til ráðstöfunar tekna af leyfum sem ráðherra veitir samkvæmt frumvarpinu verði þrengdir þannig að þeim skuli að jafnaði varið til hafsbotns- og landgrunnsrannsókna.
     3.      Tillaga er gerð um að bætt verði við 4. gr. laganna nýrri málsgrein þess efnis að við veitingu leyfa samkvæmt lögunum skuli gætt ákvæða laga um mat á umhverfisáhrifum.
     4.      Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að þeir sem þegar hafa leyfi til leitar og hagnýtingar efna á, í eða undir hafsbotni haldi þeim í tvö ár frá gildistöku laganna. Sanngirnisrök þykja mæla með því að þessi frestur verði framlengdur í fimm ár.



Prentað upp.

    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.
    Ásta R. Jóhannesdóttir og Rannveig Guðmundsdóttir skrifa undir álitið með fyrirvara og áskilja sér rétt til að leggja fram og styðja breytingartillögur við málið.
    Ísólfur Gylfi Pálmason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 3. maí 2000.



Hjálmar Árnason,


form., frsm.


Guðjón Guðmundsson.


Pétur H. Blöndal.



Drífa Hjartardóttir.


Árni Steinar Jóhannsson.


Árni R. Árnason.



Ásta R. Jóhannesdóttir,


með fyrirvara.


Rannveig Guðmundsdóttir,


með fyrirvara.