Ferill 619. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1390  —  619. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum, nr. 112/1984, með síðari breytingum.

Frá Guðjóni A. Kristjánssyni og Kristjáni Pálssyni.



     1.      Í stað 1. og 2. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
             Við 7. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
             Um atvinnuréttindi skipstjóra á flutningaskipum, farþegaskipum, farþegabátum og skemmtibátum gilda ákvæði laga um áhafnir íslenskra flutningaskipa, farþegaskipa, farþegabáta og skemmtibáta.
     2.      Við 8. gr. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ákvæði 4.–6. gr. skulu þó ekki öðlast gildi fyrr en 1. júlí 2001.



























Prentað upp.